|
Finnst þér gaman að tala við karlmenn um kynlíf?
- Vegna símaþjónustu sinnar "Símakynlíf:
Dömurnar á Rauða Torginu: " leitar Rauða Torgið samstarfs
við yndislegar, kynþokkafullar, reynslumiklar konur, 30 ára og
eldri.
- Greiddar eru kr. 100,- per mínútu í beinu samtali.
- Dama sem skráð er á vakt er með kr. 1.250,- í tekjutryggingu
per klukkustund.
- Hér má sjá hvernig
vaktaplan
dömuvaktarinnar lítur út.
Upplýsingar
Símakynlíf á Íslandi hefur dalað, meðal annars vegna þess hve
fámenn þjóðin er, og það gerist allt of oft að karlmenn hringja
inn þegar engin dama er innskráð á kerfið.
Það er ekki gott.
Með því að koma upp
vaktaplani sem er fyrirfram auglýst og aðgengilegt á netinu
vill Rauða Torgið freista þess að leiða saman símadömur og
viðskiptavini þeirra á fyrirfram skilgreindum tíma.
Hugmyndin er sú að vaktin sé frá kl. 20-24 eða 21-01 á kvöldin.
Símadaman er með kr. 1.250,- í tekjutryggingu per klukkustund.
Til þess er ætlast að símadaman svari um 90% þeirra símtala sem
berast á meðan hún er á vakt (að undanskildum þeim símtölum sem
berast þegar hún er nú þegar í samtali).
Símadama sem viðskiptavinir telja viðræðugóða og skemmtilega
mun eiga auðvelt með að spjalla í 60-120 mínútur per kvöld sem hún
er skráð á vakt, sem gefur þá tekjur allt að 12 þúsund krónur
fyrir kvöldið - eða meira ef daman talar lengur.
Rauða Torgið telur að símakynlíf á Íslandi eigi endalausa
framtíð fyrir sér ef viðræðugóðar og skemmtilegar símadömur eru
til staðar á fyrirfram skilgreindum tíma og bjóða upp á afþreyingu
hver með sínu nefi.
Þess vegna er Rauða Torgið tilbúið til að hækka tekjutryggingu
og/eða mínútugjald þeirra kvenna sem hafa sannað sig samfleytt í 3
mánuði, sem viðræðugóðar og skemmtilegar símadömur sem karlmenn
sækja í og vilja eiga sem mest samskipti við.
Hvað gerir símadama?
Sjálfstætt starf
- Rauða Torgið hefur engin afskipti af samtölum símadömu.
- Símadama talar eingöngu við þá karlmenn sem eru henni að
skapi, um þau málefni sem henni og viðmælanda hennar þykja
áhugaverð.
- Símadama neitar að ræða við karlmenn sem henni eru ekki að
skapi eða misbjóða henni á einhvern hátt.
Hvenær vinnur símadama?
- Símadama vinnur þegar henni hentar, eins oft eða sjaldan og
hún vill.
- Símadama sem er á vakt vinnur skv. fyrirfram ákveðnu
vaktaplani.
Hvar og hvernig vinnur símadama?
- Símadama vinnur heima hjá sér og notar sinn heimasíma eða
farsíma.
- Símadama sem er skráð á vakt þarf að nota heimasíma.
Hvernig virkar þetta?
- Karlmaður hringir í símkerfi Rauða Torgsins í síma 908-6000 (símatorg) og 535-9999
(kreditkort).
- Svo er valið að heyra kveðjur þeirra kvenna sem eru
með "opið fyrir samtöl" þá stundina.
- Þegar karlmaðurinn heyrir kveðju spennandi dömu ýtir hann á "6" á
símanum sínum.
- Símkerfi Rauða Torgsins hringir þá í símadömuna.
- Þegar símadaman svarar síma sínum tengir kerfið símalínur
símadömunnar og karlmannsins saman.
- Nú ræða símadaman og karlmaðurinn saman.
- Að samtali loknu leggja bæði á.
- Símkerfi Rauða Torgsins heldur utan um lengd símtalsins.
- Símadaman fær greitt fyrir samtalið skv. lengd samtalsins.
Tekjur símadömu
- Símadama fær kr. 100,- fyrir hverja mínútu
í beinu samtali.
- Símadama með tekjutryggingu er með kr. 1.250,-
lágmarksinnkomu tryggða per klukkustund á vakt. Innkoma umfram
lágmarksinnkomuna er greidd aukalega.
Meira um greiðslur
- Símkerfi Rauða Torsins heldur utan um tekjur símadömu og
skráir hvert einasta símtal, dagsetningu þess og lengd.
- Almennt greiðslutímabil er 16. - 15. hvers mánaðar en
vikulegt hjá símadömum með tekjutryggingu.
- Símadömur eru almennt séð verktakar (ekki launþegar) og fá
verktakagreiðslu án virðisauka. Slíkar greiðslur eru innheimtar
með reikning.
- Í lok greiðslutímabils fær símadama sent yfirlit yfir tekjur
sínar með tölvupóst. Símadama sendir þá Rauða Torginu
reikning og innheimtir þannig greiðslu. Það er einfalt að
senda reikning. Vandaðar leiðbeiningar fylgja hverju yfirliti.
- Símadama sem viðskiptavinir telja eftirsóknarverða til
viðræðu og sem hefur sannað sig í 3-4 mánuði bæði sem traustur
og tekjuhár starfskraftur hefur kost á því að gerast launþegi
hjá Rauða Torginu, óski hún þess.
Öryggi og persónuleynd
- Símadama starfar með fullkominni leynd.
- Viðmælendur símadömu hvorki sjá né geta komist að símanúmeri
hennar á símkerfi Rauða Torgsins og geta ekki komist að nafni
hennar.
- Símadama sem gætir þess að veita engar persónulegar
upplýsingar í samtölum sínum starfar því með
fullkominni leynd.
Ég vil skrá mig sem símadama
- Sendu Rauða Torginu tölvupóst á netfangið admin [at]
purplerabbit.eu. Í póstinum þurfa eftirfarandi
upplýsingar að koma fram:
- Gælunafn sem þú ætlar að nota sem símadama hjá Rauða
Torginu (t.d. Anna, Beta, Dísa, Elsa, Fanney...)
- Taktu fram hvort þú ætlar að vera með prófíl á
PurpleRabbit.eu og nefndu
notandanafnið sem þú ætlar að vera með þar.
- Fullt nafn
- Kennitala
- Heimilisfang
- Netfang
- Símanúmer (sem símkerfi Rauða Torgsins á að hringja í
þegar þú opnar fyrir samtöl).
- Hvenær hentugt er að hringja í þig til að staðfesta
skráningu, sé þess þörf.
- Nokkur orð um þig og þína hagi, t.d. hvað þú gerir og
hvers vegna þú vilt starfa sem símadama hjá Rauða Torginu.
ATH: Þetta er mikilvægt!
- Taktu einni fram hversu oft þú hyggst vera innskráð per
viku og hvort þú hafir áhuga á að skrá þig á vakt.
Hvað gerist þegar ég er samþykkt sem símadama?
- Þú færð sendan tölvupóst með leyninúmerum sem gera þér kleift að innskrá
þig á símkerfi Rauða Torgsins.
- Í framhaldinu innskráirðu þig hjá símkerfi Rauða Torgsins,
hljóðritar dálitla kynningu á þér, og svo ertu tilbúin til
leiks.
Ég er búin að skrá mig sem símadama. Mig vantar
leiðbeiningar!
|