Leiðbeiningar fyrir símadömur

Leyninúmer

Við skráningu fékkstu úthlutað leyninúmerum. Þú fékkst:

- Notandanúmer
- Lykilnúmer

Hafðu þessi númer við hendina þegar þú hringir til að inn- og útskrá þig.

 

Innskráning: "Opna fyrir samtöl"

  • Hringdu í 535-9900.

  • Sláðu inn notandanúmer þitt og síðan lykilnúmer þitt.

  • Nú ert þú í Aðalvali og kerfið segir: "Veldu 1 til að opna og loka fyrir samtöl, og til að vinna með kynningu dagsins". Þú velur 1.

  • Núna segir kerfið: "Veldu 1 til að opna fyrir samtöl, veldu 2 til að loka fyrir samtöl, veldu 3 til að hlusta á og breyta kynningu dagsins.

  • Þú velur 1, opna fyrir samtöl.

  • Kerfið segir: "Þú ert með opið fyrir samtöl".

  • Nú leggur þú á.

  • Nú ert þú með opið fyrir samtöl. Nú geta áhugasamir karlmenn haft samband við þig, hver á fætur öðrum, allt þar til þú hringir aftur í kerfið, innskráir þig og "lokar fyrir samtöl".

 

Útskráning: "Loka fyrir samtöl"

  • Hringdu í 535-9900.

  • Sláðu inn notandanúmer þitt og síðan lykilnúmer þitt.

  • Nú ert þú í Aðalvali og kerfið segir: "Veldu 1 til að opna og loka fyrir samtöl, og til að vinna með kynningu dagsins". Þú velur 1.

  • Núna segir kerfið: "Veldu 1 til að opna fyrir samtöl, veldu 2 til að loka fyrir samtöl, veldu 3 til að hlusta á og breyta kynningu dagsins.

  • Þú velur 2, loka fyrir samtöl.

  • Kerfið segir: "Þú ert með lokað fyrir samtlöl".

  • Nú leggur þú á.

  • Nú ert þú með lokað fyrir samtöl. Nú getur enginn haft samband við þig, allt þar til þú hringir aftur í kerfið, innskráir þig og "opnar fyrir samtöl".

 

Kynning dagsins

Kynning dagsins er mjög svipuð kveðju á talhólfi. Þetta eru nokkur orð sem þú hljóðritar, sem karlmenn heyra bara þegar þú ert með opið fyrir samtöl.

Kynning dagsins er auglýsingin þín. Þar kemur fram gælunafnið þitt og eitthvað skemmtilegt eða spennandi sem þú vilt koma á framfæri.

Með kynningu dagsins stjórnar þú hverslags karlmenn hafa samband við þig. Prófaðu ýmsar tegundir kynninga til að sjá hvað virkar best fyrir þig.

Í fyrsta skipti sem þú innskráir þig krefst kerfið þess að þú hljóðritir kynningu dagsins. Þetta gerist um leið og þú hefur ýtt á 1 í Aðalvali.

Kerfið setur þessa fyrstu kynningu í geymslu og notar hana sjálfkrafa næst þegar þú "opnar fyrir samtöl" nema þú breytir henni.

Ef þú breytir kynningu dagsins er sú upptaka sett í geymslu, og notuð næst.

 

Upptaka/breyting á kynningu dagsins

Í fyrsta skipti sem þú innskráir þig krefst kerfið þess að þú hljóðritir kynningu dagsins.
- Þetta gerist um leið og þú hefur ýtt á 1 í Aðalvali.

Þú getur líka breytt kynningu dagsins hvenær sem er.
- Þegar þú hefur ýtt á 1 í Aðalvali heyrir þú valkostina: Veldu 1 til að opna fyrir samtöl, veldu 2 til að loka fyrir samtöl, veldu 3 til að hlusta á og breyta kynningu dagsins. Þú velur 3.

 

Það er mjög einfalt að hljóðrita kynningu dagsins, og kerfið leiðbeinir þér í hverju skrefi.

 

Nokkrar ráðleggingar um kynningu dagsins

Þegar þú hljóðritar kynningu dagsins geftst þér færi á að hlusta á það sem þú sagðir, taka upp aftur, og staðfesta. Þú skalt alltaf hlusta á það sem þú sagðir.

Þegar þú hlustar á það sem þú sagðir:
- Ef þú heyrir þögn á undan fyrsta orðinu þá er það merki þess að þú haftir tekið upp þögn. Þá skaltu taka upp aftur, og byrja að tala um leið og þú heyrir hljóðmerkið.
- Ef þú heyrir þögn á eftir seinasta orðinu þá er það merki þess að þú hafir tekið upp þögn. Þá skaltu taka upp aftur og ýta á stopp-takkann um leið og þú hefur lokið máli þínu.

 

Af hverju er mikilvægt að taka ekki upp þögn?

- Á undan...
Þegar karlmenn fletta í gegnum kynningar dagsins til að finna spennandi símadömu er nauðsynlegt að rödd þín heyrist strax. Ef karlmaðurinn heyrir þögn fyrst gæti hann einfaldlega flett yfir þig - af því að hann heyrði ekki í þér strax. Þess vegna er mikilvægt að byrja að tala um leið og hljóðmerkið heyrist.

- Á eftir...
Um leið og kerfið hefur spilað kynningu þína fyrir karlmanninn spilar það leiðbeiningar fyrir hann um hvað hann eigi að gera til að ná sambandi við þig. Ef karlmaðurinn er óvanur kerfinu og heyrir ekki leiðbeiningarnar strax veit hann ekki hvað hann á að gera og gæti því flett yfir á næstu dömu. Þá missir þú af þessu samtali. Því er nauðsynlegt að ýta á stopp-takkann um leið og þú hefur sagt seinasta orðið.

 

Sjálfstætt starf

Símadama starfar sjálfstætt, án afskipta eða eftirlits Rauða Torgsins. Símadama talar eingöngu við þá karlmenn sem eru henni að skapi, um þau málefni sem henni og viðmælanda hennar þykja áhugaverð. Símadama neitar að ræða við karlmenn sem henni eru ekki að skapi eða misbjóða henni á einhvern hátt.

 

Hvenær er mest að gera?

  • Það er mikið að gera frá kl. 22:00 - 02:00.

  • Morgun- og síðdegiskaffitímar á virkum dögum eru vinsælir.

  • Hádegismatartíminn á virkum dögum er vinsæll.

  • Mikið er hringt um helgar og eru sunnudagar og sunnudagskvöld yfirleitt mjög vinsæll tími.

  • Töluvert er að gera á næturnar um helgar, þegar dansleikjum lýkur og menn tínast heim.

 

Hvernig get ég aflað sem mestra tekna?

Þær konur sem skipuleggja viðveru sína og eru alltaf við á fyrirfram ákveðnum tímum eru alla jafna tekjuhæstar.

Konur sem eru með opið til dæmis frá 9-5 virka daga eru alla jafna mjög tekjuháar.

 

Vantar frekari upplýsingar?

Ef þig vantar frekari upplýsingar vinsamlegast sendu Rauða Torginu póst og verður þér svarað eins fljótt og kostur er.